


| 10/10/2009| |
FRÉTTATILKYNNING FRÁ SKÓGASAFNI
Hafnar eru framkvæmdir við nýbyggingu á lóð Skógasafns undir Eyjafjöllum. Hér er um að ræða geymslu- og verkstæðishús við Samgöngusafnið í Skógum. Það var formaður safnstjórnar og oddviti Rangárþings eystra, Ólafur Eggertsson bóndi á Þorvaldseyri sem tók fyrstu skóflustunguna að viðstaddri stjórn safnsins. Húsið verður 1380 fermetrar að grunnfleti en auk þess er gert ráð fyrir um 500 ferm. millilofti sem verður framtíðargeymsla fyrir safngripi byggðasafnsins. Í húsinu verður komið upp aðstöðu til forvörslu á safnmunum og til að gera upp bíla og vélar sem eru í eigu þess.

Þetta er mikilvægur áfangi í uppbyggingu safnanna í Skógum sem hafa verið í örum vexti undanfarin ár. Árið 1995 var aðalbygging byggðasafnsins tekin í notkun sem er veglegt hús, teiknað af Stefáni Erni Stefánssyni, arkitekt. Þremur árum síðar var Skógakirkja vígð og árið 2002 var Samgöngusafnið í Skógum opnað. Þetta nýja hús mun leysa brýna þörf fyrir geymslurými sem er af skornum skammti í núverandi húsum en árlega berst fjöldi muna til varðveislu.
Nýja geymsluhúsið verður vandað stálgrindarhús sem byggt verður með hefðbundnum hætti, en ekki notast við tilbúnar einingar í þak og veggi. Þetta skapar meiri vinnu á staðnum sem ekki er vanþörf á í núverandi atvinnuástandi. Vonast er til að þessi framkvæmd komi til með að skapa atvinnu fyrir heimamenn næstu misserin en áætluð verklok eru haustið 2012. Húsið er hannað af Verkfræðistofu Hauks Ásgeirssonar í Kópavogi.
Skógar eru á meðal vinsælustu ferðamannastaða landsins og Skógasafn fær yfir 40 þúsund gesti árlega. Byggðasafnið í Skógum er stærsta byggðasafn landsins og Samgöngusafnið í Skógum hefur þróast hratt þótt ungt sé og stöðugt berast því munir til varðveislu. Samgöngusafnið hefur vakið mikla athygli almennings en um 250 þúsund gestir hafa skoðað safnið frá opnun þess í júlí 2002. Helstu samstarfsaðilar Samgöngusafnsins eru Þjóðminjasafn Íslands, Vegagerðin, RARIK, Íslandspóstur, Síminn og Landsbjörg. Á safninu eru deildir með sýningargripum frá þessum aðilum, auk fjölda muna í eigu Skógasafns. Nú í sumar var opnuð einstæð sýning á fjarskiptatækjum sem spannar 60 ára sögu fjarskipta á Íslandi. Það var Sigurður Harðarson, rafeindavirki sem gaf tækin til safnsins og setti upp sýninguna. Með samstarfi við ofangreinda aðila og með góðum stuðningi ríkis og sveitarfélaga á svæðinu hefur tekist að byggja upp einstakt safn sem er í fararbroddi á sínu sviði. Störfum hefur fjölgað verulega með tilkomu Samgöngusafnsins, en nú starfa um 20 manns við Skógasafn tímabilið júní til ágúst en yfir vetrartímann eru 6-7 starfsmenn við safnið. Skógasafn er í eigu héraðsnefnda Rangæinga og Vestur-Skaftfellinga.
Skógasafn, 861 Hvolsvöllur
sími: 4878845
skogasafn@skogasafn.is