Veftré | Senda póst | Leit:

Afgreiđslutími:
Maí og september: kl. 10- 17
Júní, júlí, ágúst: kl. 9-18:00
Október til apríl: kl. 11 - 16
 
 

06/07/2007| 

Jazz undir fjöllum 14. júlí 2007

Jazz undir fjöllum, árleg jazzhátíđ í Skógum undir Eyjafjöllum, verđur haldin í fjórđa sinn laugardaginn 14. júlí. Mikill metnađur hefur veriđ lagđur í dagskrána , en alls koma 15 tónlistarmenn fram á sex tónleikum.

 

Í Skógakaffi verđur bođiđ upp á lifandi og fjölbreytta dagskrá frá kl. 13-17.  Ţar koma fram kvintettinn Tepokinn, en ţeir eru langt komnir nemendur viđ Tónlistarskóla FIH. Einnig verđur tekin upp hefđ frá fyrstu jazzhátíđinni í Skógum og einir tónleikar tileinkađir minningu trompetleikarans Viđars Alfređssonar.  Viđar átti ćttir ađ rekja til Eyjafjalla og hljóđfćri hans eru geymd á byggđasafninu.

Á ađaltónleikum hátíđarinnar í félagsheimilinu Fossbúđ leikur Tríó Björns Thoroddsen međ tveimur gestum; fyrst syngur Andrea Gylfadóttir íslensk sönglög međ tríóinu, en síđan blandast jazz og blús ţegar blúskóngurinn Halldór Bragason stígur á sviđ međ trióinu eftir hlé.

 

Fyrri hátíđir hafa fengiđ frábćra ađsókn og góđa dóma.  Hér er á ferđinni einstakt tćkifćri til ađ njóta góđrar og fjölbreyttrar tónlistar í tengslum viđ náttúru Íslands eins og hún gerist fegurst. Ađstandendur hátíđarinnar eru Byggđasafniđ í Skógum og Sigurđur Flosason, en hann er skipuleggjandi tónlistaratriđa og sér um kynningarmál. Hátíđin nýtur stuđnings Rangárţings eystra og Kaupţings á Hellu. Ađgangur er ókeypis í Skógakaffi, en ađgangseyrir er kr. 1.500 í Fossbúđ og eru bćđi tónlistaratriđin innifalin.

Dagskráin er eftirfarandi:

Laugardagur 14. júlí

 

Byggđasafniđ í Skógum – Samgöngusafn / Skógakaffi

 

Kl. 13:00-13:50 Kvartett Andrésar og Eyjólfs

Eyjólfur Ţorleifsson: saxófonn, Andrés Ţór Gunnlaugsson; gítar, , Valdimar K. Sigurjónsson, kontrabassi, Einar Scheving: trommur

Kl. 14:00-14:50 Tepokinn

Jóhannes Ţorleiksson: trompet, Ingimar Anderssen: saxófónn, Kristján Martinsson: piano, Leifur Gunnarsson: kontrabassi, Magnús Tryggvason Eliassen: trommur

Kl. 15:00-15:50 Tríó Ívars Guđmundssonar

Árlegir trompettónleikar í minningu Viđars Alfređssonar

Ívar Guđmundsson: trompet, Jón Rafnsson: kontrabassi, Jóhann Hjörleifsson: trommur

Kl. 16:00-16:50 Kvartett Andrésar og Eyjólfs

Félagsheimiliđ Fossbúđ

Kl. 21:00 Andrea Gylfadóttir og Tríó Björns Thoroddsen

Andrea Gylfadóttir: söngur, Björn Thoroddsen: gítar, Jón Rafnsson: kontrabassi, Jóhann Hjörleifsson: trommur

Kl. 22:30 Halldór Bragason og Tríó Björns Thoroddsen

Halldór Bragason: gítar og söngur, Björn Thoroddsen: gítar, Jón Rafnsson: kontrabassi, Jóhann Hjörleifsson: trommur

 

til baka

       

Skógasafn, 861 Hvolsvöllur
sími: 4878845
skogasafn@skogasafn.is

Fréttir