Veftré | Senda póst | Leit:

Afgreiðslutími:
Maí og september: kl. 10- 17
Júní, júlí, ágúst: kl. 9-18:00
Október til apríl: kl. 11 - 16
 
 

16/04/2008| 

Ráðstefna um söfn á Suðurlandi haldinn í Skógum

Safnaklasi Suðurlands stóð fyrir ráðstefnu í Skógum 3. apríl sl. Þar voru Samtök safna á Suðurlandi stofnuð formlega.

 

Á ráðstefnunni var m.a. fyrsti bæklingurinn ,,Söfn á Suðurlandi” afhentur við hátíðlega athöfn en Þórður Tómasson, safnstjóri í Skógum, tók við honum. Þessi útgáfa er afrakstur samstarfs safna á Suðurlandi sem stofnað var til með aðstoð Vaxtarsamnings Suðurlands árið 2007. Upplýsingum um öll söfn, sýningar, setur, garða og gestastofur á Suðurlandi hefur verið safnað saman í bæklingnum sem eru alls 60. Gísli Sverrir Árnason safnaði efni og ritstýrði bæklingnum.

 

Bæklingurinn er gefinn út í 40.000 eintökum en honum er dreift í upplýsingamiðstöðvar og öll hús á Suðurlandi. Afar handhægt er að geta nálgast allar þessar upplýsingar á einum stað. Þessi útgáfa er dæmi um frábært samvinnuverkefni Safnaklasans.

 

Hin nýstofnuðu Samtök safna á Suðurlandi eiga ugglaust eftir að láta að sér kveða en ýmis verkefni eru nú þegar í undirbúningi og má þar t.d. nefna fyrirhugaða Safnanótt á Suðurlandi.

til baka

       

Skógasafn, 861 Hvolsvöllur
sími: 4878845
skogasafn@skogasafn.is

Fréttir