Veftré | Senda póst | Leit:

Afgreiðslutími:
Maí og september: kl. 10- 17
Júní, júlí, ágúst: kl. 9-18:00
Október til apríl: kl. 11 - 16
 
 

03/07/2008| 

Ný sýning opnuð í Samgöngusafni

Í janúar 2008 gerði Skógasafn þjónustusamning við Slysavarnafélagið Landsbjörgu sem felur m.a. í sér að safnið leggur SL til sýningarsvæði í Samgöngusafninu í Skógum fyrir sýningu á munum félagsins. Með þessum samningi bættist SL eða Landsbjörg í hóp samstarfsaðila Samgöngusafnsins en fyrir voru Vegagerðin, Íslandspóstur, Rarik, Síminn og Þjóðminjasafn Íslands.

 
 

Þann 15. júní sl. opnaði Slysavarnafélagið Landsbjörg í samvinnu við Skógasafn nýja sýningu í Samgöngusafninu í Skógum við hátíðlega athöfn að viðstöddum um 70 gestum. Við opnunina mættu félagar úr Slysavarnafélgaginu Landsbjörgu, auk annarra boðsgesta og héldu Sigurgeir Guðmundsson formaður Landsbjargar og Sverrir Magnússon framkvæmdastjóri Skógasafns ávörp. Að lokum buðu Landsbjörg og Byggðasafnið upp á kaffiveitingar.

 
 

Sýningin gerir áttatíu ára sögu björgunarsveitanna í landinu skil með tækjum, textum, myndum og ýmsum búnaði í um 170 fm rými. Sýningarhönnuður er Björn G. Björnsson, List og Sögu.

til baka

       

Skógasafn, 861 Hvolsvöllur
sími: 4878845
skogasafn@skogasafn.is

Fréttir