Veftré | Senda póst | Leit:

Afgreiðslutími:
Maí og september: kl. 10- 17
Júní, júlí, ágúst: kl. 9-18:00
Október til apríl: kl. 11 - 16
 
 

17/10/2008| 

Afhjúpun minnisvarða í Mörtungu

Byggðasafnið í Skógum hefur undanfarin ár staðið fyrir endurbótum á gömlum fjárhúsum á Höfða í Mörtungu á Síðu. Húsvörður safnsins, Viðar Bjarnason á Ásólfsskála, hefur leitt verkið. Húsin eru afarvel uppgerð að viðum, undir grjóthellu og torfi og vegghleðslur gott dæmi um verksnilli gamla tímans. Mikil og góð heyhlaða er bak fjárhúsa. Verkið hefur verið kostað af dánargjöf Steingríms Skúlasonar bónda í Mörtungu til safnsins, en hann lést árið 2001 og er gjöf hans og tilgangur hennar í raun einstæð í safnsögu Íslands.
 
 
Á grundinni við fjárhúsin rís mikil stuðlabergssúla fengin í landi Mörtungu.
Í tilefni af tímabundnum verkalokum við fjárhúsin og í minningu menningarbænda í Mörtungu hefur bronsskjöldur verið festur á stuðlabergssúluna með þessari áletrun: ,,Í minningu bræðra og bænda í Mörtungu, Odds Skúlasonar, 1913-1999, og Steingríms Skúlasonar, 1910-2001. Byggðasafnið í Skógum.“ Byggðasafnið bauð gestum að Mörtungu þann 16. október. Jóna Sigurbjartsdóttir oddviti á Kirkjubæjarklaustur afhjúpaði minnismerki en Þórður Tómasson safnstjóri flutti ávarp.
 
Ólafur Oddsson bóndi í Mörtungu og kona hans, Guðríður S. Jónsdóttir, buðu gestum til hressingar á heimili sínu en síðan var haldið á Hótel Klaustur á Kirkjubæjarklaustri þar sem veisluborð beið gesta í boði Byggðasafnsins. Þar tóku til máls Þórður Tómasson, Sigþór Sigurðsson í Litla-Hvammi og Sverrir Magnússon framkvæmdastjóri Byggðasafnsins sem rakti sögu framkvæmda og ánægjuleg samskipti Byggðasafnsins og Vestur-Skaftfellinga. Mikilsverðir þættir í þeirri samvinnu eru fjárhúsin á Höfða og endurbygging gamalla torfhúsa á Hnausum í Meðallandi sem staðið hefur yfir um nokkur ár og er nú lokið.
 

 

til baka

       

Skógasafn, 861 Hvolsvöllur
sími: 4878845
skogasafn@skogasafn.is

Fréttir