


| Smíðagripir Sigurjóns í Hvammi |
![]() Hefillinn er mikill kostagripur og hefur þurft mikla útsjónarsemi og nákvæmni við smíði hans. Sigurjón mun hafa ætlað að kaupa sér hefil en þótti þeir heldur dýrir út úr búð og ákvað því að smíða sér einn slíkan. Fleiri hlutir eftir Sigurjón eru á safninu, svo sem áhöld til leðursaums, túrbínuhjól og fleira. Sigurjón er gott dæmi um þá sjálfsbjargarviðleitni sem fólk varð að sýna í þá daga er ekki var hægt að fara út í búð og kaupa hlutina heldur urðu menn að bjarga sér með það sem þeir höfðu við höndina eða þá að búa hlutina til sjálfir væri þess einhver kostur. |
Skógasafn, 861 Hvolsvöllur
sími: 4878845
skogasafn@skogasafn.is