


Aðalbygging

Árið 1955 var hafist handa við smíði aðahúss byggðasafnsins. Var þá reist myndarlegt steinhús sem hýsa skyldi muni safnsins sem strax voru orðnir margir og merkilegir. Húsið var að hluta byggt utan um áttæringinn Pétursey. Einnig skapaði það gott rými utan um marga aðra muni tengda hverfandi menningu og atvinnuháttum síðustu aldar.
Með stórauknum ferðamannastraumi og sífellt fleiri munum, sem safninu bárust frá velunnurum þess, skorti mjög meira sýningarrými. Að því kom að byggð var góð snyrtiaðstaða við húsið. Árið 1990 var svo hafist handa við byggingu stórrar og glæsilegrar nýbyggingar sem hýsa skyldi safnið um ókomna tíð. Þangað var áttæringurinn Pétursey fluttur og stendur nú í hjarta sjósóknardeildar með rá og reiða.
Þetta nýja hús hýsir einnig skjalasafn Rangæinga og Vestur- Skaftfellinga.
Með tilkomu hússins hefur skapast meira rými fyrir muni safnsins. Hönnun nýbyggingarinnar var í höndum arkitektanna Stefáns Arnar Stefánssonar og Grétars Markússonar.
til baka
Skógasafn, 861 Hvolsvöllur
sími: 4878845
skogasafn@skogasafn.is