Veftré | Senda póst | Leit:

Afgreiđslutími:

Maí og september: kl. 10- 17


Júní, júlí, ágúst: kl. 9-18:00

Október til apríl: kl. 11 - 16

 

 

Torfbærinn

Torfbærinn er safn gamalla húsa sem koma vítt og breitt af Suðurlandi. Hann er góður fulltrúi fyrir liðna menningu og byggingarstíl liðina alda. Hvert hús samsvarar sér vel sem eining og myndar bærinn góða og heilsteypta mynd af húsakosti forfeðra okkar.

 

 

 

 

 

 

 


 

       
Byggingar

Hafist var handa við uppbyggingu torfbæjarins í Skógum þegar fyrsta húsið var flutt á svæði safnsins. Það hús var skemma frá Varmahlíð undir Vestur-Eyjafjöllum. Skemman var tekin niður í Varmahlíð og flutt að Skógum þar sem hún var endurgerð 1969. Í kjölfarið fylgdu svo önnur hús, eitt af öðru. Næst var flutt að Skógum baðstofan frá Arnarhóli árið 1970, þá hlóðaeldhúsið, stofan frá Götum, Húsafjósið, búrið og nú síðast eldsmiðja sem var í eigu Tómasar Þórðarsonar, föður Þórðar Tómassonar safnstjóra.

    1. Stofan frá Götum í Mýrdal.
    2. Búrið frá Seljalandi í Fljótshverfi.
    3. Hlóðaeldhús frá Kvoslæk í Fljótshlíð.
    4. Baðstofa frá Arnarhvoli í Landeyjum.
    5. Skemma frá Varmahlíð undir Eyajfjöllum.
    6. Krossfjós frá Húsum í Ásahreppi.
    7. Eldsmiðja frá Skógum undir Eyjafjöllum.

        til baka

Skógasafn, 861 Hvolsvöllur
sími: 4878845
skogasafn@skogasafn.is