


Landbúnaðardeild
Í landbúnaðarsal eru sýnishorn gamalla atvinnutækja á Íslandi. Við austurgafl eru meðal annars eldhúsáhöld. Á norður- vegg eru munir frá smiðjum og smíðahúsum. Á langvegg í miðju húsi eru munir frá slætti, reiðskap og ferðum. Á sunnan- verðum langvegg eru verkfæri til húsagerðar og ýmis landbúnaðarverkfæri og við suðurvegg eru áhöld og ílát til mjólkurvinnslu. Við vesturvegg má finna áhöld og tæki til leðurvinnslu og leðursaums og ýmis smáverkfæri.


Skógasafn, 861 Hvolsvöllur
sími: 4878845
skogasafn@skogasafn.is