Veftré | Senda póst | Leit:

Afgreiđslutími:
Maí og september: kl. 10- 17
Júní, júlí, ágúst: kl. 9-18:00
Október til apríl: kl. 11 - 16
 
 

Sjósóknardeild

Í sjóminjasal er höfuðprýði safnsins, áraskipið Pétursey, byggt árið 1855 og í notkun til ársins 1946. Lagið á skipinu miðast við brimlendingar á sandfjörum Suðurlands. Skipið var oft í förum til Vestmannaeyja. Lengst var því haldið úti í Máríuhliði við Jökulsá á Sólheimasandi.

Á gaflvegg er mynd af Landeyingum í kaupstaðarferð til Vestmannaeyja árið 1894. Á suðurvegg eru sýnishorn rekamarka; áhöld til skipasmíði og sjóklæði, síðast notuð 1935. Á norðurvegg eru veiðarfæri allskonar og sýnishorn þess hvernig hvalbein voru notuð í daglegu lífi. Þar eru einnig virki til að reiða fisk heim af sandi og hnakkar sjómanna. Vestar á norðurvegg eru útskornar og letraðar skipsfjalir.

til baka

 

 

       

 

Skógasafn, 861 Hvolsvöllur
sími: 4878845
skogasafn@skogasafn.is

Deildir safnsins