Skip to the content

Jazzhátíð í Skógum

Jazz undir fjöllum
Jazzhátíð í Skógum undir Eyjafjöllum
22. júlí 2023


Jazz undir fjöllum, árleg jazzhátíð í Skógum undir Eyjafjöllum, verður haldin í tuttugasta sinn laugardaginn 22. júlí. Í ár fara tónleikarnir fram í Skógakirkju og á Freya Café í Samgöngusafninu í Skógum. Ókeypis er inn á tónleikana og reiknað með að gestir geti komið og farið að vild á meðan á tónleikunum stendur.


Fyrri hátíðir í Skógum hafa fengið frábæra aðsókn og góða dóma. Hér er á ferðinni einstakt tækifæri til að njóta góðrar og fjölbreyttrar tónlistar í tengslum við lifandi náttúru Íslands eins og hún gerist fegurst. Aðstandendur hátíðarinnar eru Skógasafn og Sigurður Flosason. Hátíðin nýtur stuðnings Rangárþings eystra og Skógasafns. 


Dagskráin er eftirfarandi:
Laugardagur 22. júlí

Skógakirkja

Kl. 13:30-14:30  - Sálmar og þjóðlög

Agnar og Sigurður spinna út frá íslenskum þjólögum og sálmum

Agnar Már Magnússon: píanó og harmóníum, Sigurður Flosason: saxófónar

 

Samgöngusafnið í Skógum, Freya Café

Kl. 15:00-16:00 – Bláir skuggar

Grípandi tónlist á mörkum jazz og blús

Sigurður Flosason: saxófónn, Andrés Þór Gunnlaugsson: gítar, Agnar Már Magnússon: Hammond-orgel og Jóhann Hjörleifsson: trommur. 

Kl. 16:00-17:00 - Unnur Birna og vinir

Fjöbreytt og skemmtileg dagskrá með söng og sveiflu

Unnur Birna Björnsdóttir: söngur og fiðla, Andrés Þór Gunnlaugsson: gítar, Agnar Már Magnússon: hljómborð, Sigurgeir Skafti Flosason: bassi, Jóhann Hjörleifsson: trommur. 

Opnunartímar

Júní, júlí og ágúst frá 09:00 – 18:00

september - maí: 10:00 – 17:00

 

Leiðsagnir um safnið

Leiðsagnir um safnið eru í boði fyrir pantaða hópa sem telja tíu eða fleiri á ensku, þýsku og íslensku. Einnig gefst stundum kostur að fá leiðsögn á frönsku og norðurlandamálum.

Leiðsagnir eru í boði frá opnun og fram til klukkutíma fyrir lokun.

Meiri upplýsingar um pantanir fyrir hópa og leiðsagnir má nálgast á booking@skogasafn.is eða í síma 487 8845.