Skip to the content

Jazzhátíð í Skógum undir Eyjafjöllum 6. júlí 2019

Jazz undir fjöllum, árleg jazzhátíð í Skógum undir Eyjafjöllum, verður haldin í sextánda sinn laugardaginn 6. júlí.

Aðaltónleikar hátíðarinnar fara fram í félagsheimilinu Fossbúð laugardagskvöldið 6. júlí kl. 21:00. Þar kemur fram tríó gítarleikarans Björns Thoroddsen ásamt söngkonunni og fiðluleikranum Unni Birnu Bassadóttur. Sigurgeir Skafti Flosason leikur á bassa og Skúli Gíslason á trommur. Þau munu flytja fjölbreytta dagskrá uppáhaldslaga úr ólíkum áttum á sinn hátt, spjalla og grínast.

Í Skógakaffi verður boðið upp á tónlist laugardaginn 6. júlí frá kl. 14-17. Þar verða óformlegri tónleikar eða nokkurskonar jam session þar saxófónleikarinn Sigurður Flosason leiðir kvartett sem skipaður er Vigni Þór Stefánssyni á píanó, Leifi Gunnarssyni á kontrabassa og Erik Qvick á trommur. Sérstakur gestur verður brasilíski píanóleikarinn og söngvarinn Paulo Malaguti. Ókeypis er inn á þessa tónleika og reiknað með að gestir geti komið og farið að vild á meðan á tónleikunum stendur.

Þess má geta að óvenju margir þátttakendur á hátíðinni eru ýmist búsettir eða uppaldir á Suðurlandi eða alls fimm talsins. Hér verður því á ferðinni sannkallaður sjóðandi suðurlands jazz!

Opnunartímar

Júní, júlí og ágúst frá 09:00 – 18:00

september - maí: 10:00 – 17:00

 

Leiðsagnir um safnið

Leiðsagnir um safnið eru í boði fyrir pantaða hópa sem telja tíu eða fleiri á ensku, þýsku og íslensku. Einnig gefst stundum kostur að fá leiðsögn á frönsku og norðurlandamálum.

Leiðsagnir eru í boði frá opnun og fram til klukkutíma fyrir lokun.

Meiri upplýsingar um pantanir fyrir hópa og leiðsagnir má nálgast á booking@skogasafn.is eða í síma 487 8845.